Karlmannsleysi !!!!

Karlmannsleysi  ?Errm

 

Ég hef aldrei upplifað annað eins hallæri og karlmannsleysi eins og þessi misseri.

Þessi ástsæla og söngelska þjóð er bara alveg karlmannslaus, nema að þeir hópi sér saman í hnapp í svokallaða karlakóra ? Með fullri virðingu fyrir karlakórum. Hvernig stendur eiginlega á því ? Tenórar eru eins sjaldgæfir og hvítir hrafnar, og það er vitað að þeir eru og hafa verið til, en engin veit um þá eða hefur séð þá. Ég bara auglýsi hér með eftir tenórum sem ekki eru karlakóra fastir. Karlmannsleysið (tenórar) er orðið að vandamáli í kór Fella- og Hólakirkju. Ef það eru einhverjir tenórar sem vilja sanna það að hvítir hrafnar séu til og vita hversu dýrmætir og sjaldgæfir þeir eru. Eru velkomnir til okkar. Við æfum á þriðjudagskvöldum kl 19.30.Whistling

 

Svo hélt ég líka að ég myndi aldrei upplifa það að það vantaði kvenfólk til þess að jafna út karlpeninginn. Það er bara eins og að jörðin hafi gleypt allt söngelskt fólk á Íslandi.

Kæru sönglelska fólk, lyftið ykkur upp í Do,Re,mí og látið sjá ykkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Alveg merkilegt, nefninlega. Svo syngja allir þegar þeir eru  komnir á 5. og 6. glas. Þá eru hetjutenórar í hverju horni! Áfram sis með skrifin. Til lukku með bloggið. Knús og kossar.

Sigurlaug B. Gröndal, 19.9.2008 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband