Loksins

Loksins tókst mér að koma því í verk að virkja mig hér aftur. Nú ætla ég að vera dugleg að skrifa og koma mínum hversdaglegu vangaveltum á netið. Nú er bara að finna upp á einhverju sniðugu til þess að tjá mig um, ég er alveg viss um að það kemur en þangað til bið ég að heilsa öllum sem ég þekki.

Kveðja
Steina


Karlmannsleysi !!!!

Karlmannsleysi  ?Errm

 

Ég hef aldrei upplifað annað eins hallæri og karlmannsleysi eins og þessi misseri.

Þessi ástsæla og söngelska þjóð er bara alveg karlmannslaus, nema að þeir hópi sér saman í hnapp í svokallaða karlakóra ? Með fullri virðingu fyrir karlakórum. Hvernig stendur eiginlega á því ? Tenórar eru eins sjaldgæfir og hvítir hrafnar, og það er vitað að þeir eru og hafa verið til, en engin veit um þá eða hefur séð þá. Ég bara auglýsi hér með eftir tenórum sem ekki eru karlakóra fastir. Karlmannsleysið (tenórar) er orðið að vandamáli í kór Fella- og Hólakirkju. Ef það eru einhverjir tenórar sem vilja sanna það að hvítir hrafnar séu til og vita hversu dýrmætir og sjaldgæfir þeir eru. Eru velkomnir til okkar. Við æfum á þriðjudagskvöldum kl 19.30.Whistling

 

Svo hélt ég líka að ég myndi aldrei upplifa það að það vantaði kvenfólk til þess að jafna út karlpeninginn. Það er bara eins og að jörðin hafi gleypt allt söngelskt fólk á Íslandi.

Kæru sönglelska fólk, lyftið ykkur upp í Do,Re,mí og látið sjá ykkur.


Einkavæðing !!!

Ég vil bara benda öllum á að lesa bloggið frá honum Páli Gröndal. Það er virkilega fróðleg lesning. Það er skelfilegt að hugsa til þess, ef íslendingar ætli virkilega að eta allt upp eftir bandaríkjamönnum, og þar með talið að einkavæða heilsugæslu. Ef menn vissu bara hvaða afleiðingar þetta hefur. Páll hefur mörg dæmi um það, sem hann á sjálfsagt eftir að víða að á bloggsíðu sinni.  Að þurfa að tryggja sig sérstaklega fyrir heilsunni "hverja einustu smáa sem stóra sjúkdóma og slys!" Þá er nú eins gott að fara að vara sig, því það kostar að tryggja sig, og svo smáaletrið eins og allir kannast við í öllum samningum. Það þarf ekki sérfræðing til þess að reikna dæmið út. Ég segji bara NIÐUR MEÐ EINKAVÆÐINGU HEILSUGÆSLUNNAR.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband